Cheeky bastards
17.05.2007 00:03:39 / Olx

Cheeky theolx - www.theolx.com

Núna á nýja síðan að vera sæmilega örugg og samt nothæft. Þó smávægilegar breytingar, hér til vinstri er hægt að velja Innskáning í stað þess að fara á sér admin síðu. Þar er nafn og lykilorð það sama eins og áður var lýst, t.d. eddi - eddi, kristjan - kristjan, o.s.frv. Breytið því endilega sem fyrst undir "Stillingar" þegar þið eruð innskráðir. Bloggið á líka að virka og að uploada og setja inn mynd, kerfið passar þó ekki uppá að myndin sé ekki 500043504350 megapixlar á stærð þannig að þið þurfið sjálfir að passa það í smá tíma. Annars er líka hægt að fikta aðeins undir stillingar, þó hefur það engin áhrif að breyta textanum undir reitnum sem heitir Mynd, það kemur seinna. Breytingarnar í "Stillingar" sjást svo á Hverjir eru flottir síðunni. Síðan kemur auðvitað til með að bætast við þetta allt smám saman. Það er samt alveg leyfilegt að tuða ef eitthvað virkar ekki eins og það á að gera. FLOTTUR!

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.05.2007 14:11:48 / Hannes

Knattspyrnuvertíð í Frostaskjóli lokið - and it's payday!

Sælir,

 Örn Steinsen sem sér um íþróttahúsið í Frostaskjóli hringdi í mig og sagði mér að við gætum ekki haldið sunnudagstímunum í maí þar sem þeir ætla loka húsinu á sunnudögum. Hann bauð okkur afskaplega óhentugan tíma klukkan 21:30 á miðvikudögum í staðinn. Eftir að hafa ráðfært mig við Tryggva tók einræðislega ákvörðun og afþakkaði tímann. Ljósi punkturinn er samt sá að við hefðum líklega tæplega náð að manna seinni tvo tímana í maí og því töluverður sparnaður á ferð. Með því að sleppa tímunum í maí spörum við 23.200 kr. En þá er líka komið að því að borga og þar sem mánaðarmót eru nýliðin vona ég að sem flestir geti afgreitt þetta sem fyrst. Ég ætla að setja skuldalista hérna á síðuna ásamt því að senda sms á alla og menn verða því fjarlægðir þegar þeir hafa lokið við greiðslu.

 

Magnað, allir búnir að borga!


» 30 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 01:52:38 / robbi

Bío Bío Bío!

Núna þegar sumarið er komið, er fátt betra en að skella sér í bío.Fyrir valinu var epísk mynd og passaði hún vel við sumar þemað sem er í gangi.

Ég er að tala um enga aðra mynd en Sólskyn eða “Sunshine” eins og það ensku.
Myndin byrjar rólega og allt gengur vel fyrir sig á ferðalæginu hjá aðal hetjunum okkar,
Húmor, háðsglósur og hamingja er aðal þema í fyrstu mínotum myndarinnar,en

því miður fyrir þessa léttgeggjuðu og flippuðu áhöfn endist þetta ekki lengi, áhyggjur og vandamál hlaðast upp þegar líður á myndina og þá mun reyna á vinabönd og staðfest áhafnarinar til að rísa upp að mæta þeim ógnum sem dynja á þeim.

Það sem gerir þessa mynd sérstaklega skemmrtilega er að hún er samanblanda af 3 mjög góðum og klassískum myndum.

Fyrst ber að nefna “The Core”.Að reyna að fara inn í hjarta sólarinnar til þess að kveikja á henni er ekki ósvipað og vinir okkar í “The Core” reyndu á sínum tíma.

Númer 2 ber að nefna “Event Horizon”. Þó að það sé enginn Sam Neil að reyna að taka augu úr fólki, og þótt að myndinn heitir því fallega nafni sólskyn, þá er margt slágandi líkt með þessum tveim myndum. Þeir ná ekki að skapa jafn gott móment og í “Event Horizon” þegar Sam Neil segir. “You don’t need eyes where your going” en þeir reyna. Good effort segji ég.

Síðast ber að nefna “The Cube”. Margir eru öruglega að huggsa “ ha nei það getur ekki verið!”. En jú það er þannig, alveg í blá lokinn fáum við atriði sem gerist á einhverskonar “Cube” þar sem ekki er allt með feldu, þó aðallega sú staðreynd að þyngdaröflinn hafa hætt að virka eins og við þekkjum þau…

Að enda myndina á senu sem er samblanda af “the Cube” og “Event Horizon” er að mínu mati ódauðlegt og á þetta atriði eftir að lifa lengi í hjarta mínu.

Myndinn fær að vísu bara 2 ½ stjörnur, vegna gríðalegs skorts á :

heitum gellume
ekkert ríðingar atriði þar sem brjóst sjást,
og skort af “one-liner’s” bröndurum.

Ég fór að huggsa, þar sem er hægt að blanda þessum myndum saman, hvaða öðrum myndumi er hægt að blanda saman?

Event Horizon , Home Alone og Kindergarten Cop?

Arnorld og Macaulay Culkin í epískum bardaga milli góðs og ílls við Sam Neil,. Arnold að reyna að loka hliðinu til helvítis og berjast á fullu meðan Macaulay Culkin leggur skemmtilega gildrur fyrir Sam Neil. Gæti Virkað….

Fleyri hugmyndir?


» 13 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 18:53:31 / Húni

analrapist

:) :o :lol: :| :S 8) :D :( ;) 8| :!: :cry: :evil: :$ :klikk: :whut: :haha: :P :^) :frown:

Mig hefur alltaf langað að setja broskalla inn á blogg en ekki þorað því. Ástæðan er tvíþætt í fyrsta lagi er ég hræddur við gagnrýni og í öðru lagi skil ég hreinlega ekki alla þessa broskalla. Eru ekki 2 nóg; einn sem sýnir gleði/ánægju og annar sem sýnir reiði/leiða ?

Ef einhver er tilbúinn til að ræða þetta við mig jafnvel undir 4 augu þá gætum við hist á kaffihúsi með skrifblokkir.

Annað mál Nonni spurði mig af hverju ég mætti ekki í póker seinasta laugardag, þið eruð of auðveldir í póker og ég var ekki með far.

Nonni vildi meina að mögulega væri ennþá spenna á milli mín og Halldórs vegna "10 málsins" og það gæti vel verið. Ég lét vissulega slæm og niðrandi orð falla (í gríni) og má vera að Halldór hafi ekki náð innri sátt með þetta mál þrátt fyrir farsæl málalok. Spurning um að við myndum hittast á kaffihúsi og ræða málin og koma öllum kurlum til grafar í eitt skiptið fyrir öll?

Við nánari sálarrannsókn og leit að frekari spennu milli aðila í hópnum fann ég nokkra hluti og aðra sem mögulega gæti verið hrjá áru vinahópsins.
Tryggvi er leiðinlegur en það er fyrir löngu komið á yfirborðið og ríkir engin spenna um það.
Nonni er samkynhneigður og í glasi brýst út villidýrið sem edrúmennskan heldur annars í skefjum. En einhver kynferðisleg spenna myndast á milli aðila sökum þessa og það þyrfti að ræða opinskátt um það (ég mæli með kaffihúsi).

Commentið á þetta og komið með punkta sem ykkur finnst merkilegir.

Fyrirbyggjandi aðgerði gagnvart Kristjáni: ekki kommenta, takk. 


» 8 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 11:49:21 / dorsinn

Fússari

Halló halló

Langt síðan maður hefur skrifað hérna...ég er alltaf að bíða eftir því að Óli drífi internetsíðuna sem hann hannaði í notkun...Óli það er allt í lagi að hún sé ekki fullkláruð, er ekki hægt að setja hana samt inn?

En að öðru...nú styttist allsvakalega í það að ég fái nýja og fína hnéspelku, sérsniðna að mínum sérkennilegu lærum/kálfum. Það þýðir að ég kem til með að vilja fara oft í knattspyrnu...

Eru menn ekki til í að ákveða einhvern sérstakan tíma þar sem við getum hist, 8 kvikyndi, á sparkvelli eins og Hamrarnir gera tvisvar í viku? Mér finnst amurlegt að vera að missa af öllum innanhússboltanum og má ekkert fara í hann í vetur, en ég má fara á gervigras og því væri nú gaman að finna einhvern lausan tíma í það...hvað segið þið?

Ég sé fyrir mér svipaða ólgandi erótík í þessum bolta sem um ræðir...

Cheeky!


» 11 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 14:40:47 / Hannes

Arnórskur "Iceman" Magnússon á lausagangi!

Það er mér hrein unun og annars konar ánægja að tilkynna komu Arnórska bjarnarins í borg óttans. Hann lendir á Reykjavíkurflugvelli um 16:00 síðdegis í dag og verður móttökunefnd og önnur viðhöfn eins og við á þegar fyrirmenni blanda geði við hinn óbreytta almúga. Arnóri fylgir sendinefnd frá Djúpavogi sem skipa m.a. 2 óspjallaðar meyjar, 3 þurrkuð þorskflök og felgulykill. Það er von mín að íbúar Reykjavíkur sjái heiður sinn í því að fagna komu Ísmannsins og veita óskipta athygli þá þrjá daga sem hann gefur okkur í þetta skiptið.

Tillögur helgarinnar eru:

Póker
Uppfræðsla um SSAD
Fjöldi metalmerkja og hárra fimma
Ólgandi dans
Nintendo

Óskað er eftir fleiri tillögum og hugmyndum um hvernig megi gera dvöl hins íslenska holdgervings Arnolds Schwartzenegger sem ánægjulegasta!

 Góðar stundir


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.02.2007 14:40:39 / Kristjan

Ást og hamingja

Enginn flottari

» 5 hafa sagt sína skoðun

31.01.2007 18:56:51 / Vikingur

I'm loosing my favorite game

Sem fyrr er tæknin eitthvað að stríða okkur hérna á þessari annars ágætu síðu. En jæja hérna kemur kommentið mitt á hann Paul Weller... eða hinn gaurinn.


Hvernig væri að þvo sér bara almennilega um rassgatið!!! Kristján verður að teljast frumkvöðull á því sviði með standaáhöndumanalþvottaaðferðina sem hann er þekktur fyrir að nota, sérstaklega á almannafæri. Ég hef reyndar tileinkað mér öllu smekklegri aðferðir, enda búsettur í rassapotarahöfuðborg Evrópu.
Ef einhver hefur sérstaka ánægju af því að safna drullumixuðum rastalokkum umhverfis anus getur sá hinn sami e.t.v. notað svona handklæði, en ég flokkast ekki í hóp saurrastarassaðdáenda svo þú mundir ekki græða neitt á mér Ólafur.

» 4 hafa sagt sína skoðun

17.01.2007 02:11:29 / Olx

Tom Welling

Þegar ég kom úr gufunni í dag fór ég í sturtu og byrjaði síðan að þurrka mér í framan. Gaus þá upp megn rasslykt af handklæðinu, líklega vegna þess að hliðin sem var notuð nú fyrir andlit var síðast notuð fyrir rass. Mátti ég því fara aftur í sturtu og loftþurrka mig svo með hristingi og hoppi að hætti Hróa. Bölvaði pínu og kenndi samfélaginu um en uppgvötaði svo sæmilega öflugt húsráð sem ég gæti grætt milljarða á. Fannst síðan eins og fólk ætti ekki að þurfa að borga fyrir að sleppa við rasslykt framan í sér þannig að snolldin birtist því hér:

Kaupið ósamhverf handklæði þannig að maður geti valið rasshlið við fyrstu notkun og því haldið andlitinu og anlinum aðskildum. T.d. verður liturinn öðru megin á handklæðinu að vera annar en hinu megin, mismunandi áletrun á hliðunum eða eitthvað í þá áttina.

Milljarðahugmyndin fólst í að prenta "anall" og "andlit" sitthvoru megin á nokkur hundruð þúsund handklæði, jafnvel með mynd, en ég komst að því að einhver er þegar búinn að gera það. Helvítis internetið er búið að finna upp allt.

Væmin lokaorð: Takk fyrir nokkur sveitt fyllerí og aðrar góðar stundir um jólin. Biðst afsökunar á ótæpilegu hommaríi af minni hálfu, nema í þínu tilviki Eddi því eins og þú veist þá var ég að meina þetta allt.


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.01.2007 02:33:25 / Vikingur

Warsteiner er ógeðslegt skólp

Hver man ekki eftir Killer on the Rampage með Eddy Grant? ...ég er búinn að vera að rifja upp nokkra helvíti góða slagara (eftirköst frá áramótapartíinu hjá Ólxinu)... klúðraði þessu samt alveg með því að taka Kafbátamúsík með Ensími ekki með mér... helv. ves!
Svo rakst ég líka á lagið Horse with no Name með hljómsveitinni America... helvíti gott, en líklegast lítt þekkt hjá sótsvörtum almúganum... oder?
Ég ætla að skella mér á HM í handbolta eftir rúmlega viku og vera flottur á því í Magdeburg með einn kaldann í lúkunni og fagna gengi Íslendinga hvort sem það verður gott eða betra.
Boojaka boojaka icky icky wicked wicked cheeky cheeky!

» 2 hafa sagt sína skoðun

07.12.2006 20:41:01 / dorsinn

Próftíðarþunglyndi


Próf eru leiðinleg
Mig langar í fótbolta eða körfubolta
Það styttist í jólin
Þegar líkamsþyngdarstuðull minn er kannaður (BMI) er ég á mörkum þess sem kallað er offita...gaman að því!
Mér bauðst starf sem garðyrkjumaður hjá Eiði Smára eftir áramót...ég hafnaði því... FEIS Eiður!
Annars var ég á Nou Camp þegar Ronaldinho skoraði úr hjólhestaspyrnunni frægu...það var fínt...
Fyndnasta orðið sem ég hef lært á þessari önn er canalis analis (handa Stinna)
Best að fara að búa til ommelettu og drekka meira kaffi
Hvar verða menn um áramótin? Ég verð á Akureyri.
Ætli Tryggvi þunnhærði verði svona eftir nokkur ár? Flippaður sköllóttur api


Ok bless

» 35 hafa sagt sína skoðun

01.12.2006 17:00:20 / Hannes

Vinahópurinn að hruni kominn?

Ég rakst á þessa frétta á www.mbl.is í gær og varð vægast sagt brugðið. Eftir nokkra umuhugsun tel ég að vinhópurinn sé vafalaust að hruni kominn og líklega best að menn fari að ræða við fljölskyldur sínar og aðra vini!

---

HIV-smitum fjölgar meðal samkynhneigðra karla í Noregi

Tíðni HIV-smita meðal samkynhneigðra karlmanna í Noregi hefur aukist á árinu, og er útlit fyrir að í ár verði þau fleiri en nokkru sinni fyrr. Ovind Nilsen, ráðgjafi við Lýðheilsustofnun Noregs, segir að óaðgætni í kynlífi sé meginástæðan.

Frá þessu greinir fréttavefur Aftenposten.

,,Það virðist sem að margir samkynhneigðir líti ekki lengur á HIV sem mikla ógn, og taki þá áhættu að stunda tilviljanakennt og óöruggt kynlíf. Það hefur lánast að ná betri tökum á sjúkdómnum, og það þarf greinilega að leita nýrra leiða til að hafa áhrif á ríkjandi viðhorf," segir Charlotte Haug, ritstjóri tímarits norska læknafélagsins.

----

Eins og flestir okkar vita hefur ónefndur meðlimur vinahópsins ferðast reglulega til Noregs undanfarinn ár. Ef tekið er mið að vægast sagt frjálsri og óheflaðri kynlífshegðun piltsins er ljóst að vinahópurinn stendur á barmi glötunar. Hér fyrir neðan má sjá mögulegar smitleiðir:

----

Eddi stundar saurlifnað í Noregi...

Ég og Eddi áttum unaðslega baðstund síðastliðna helgi...

Eddi ríður Tryggva reglulega...

Tryggvi og Húni hafa átt rómantískar stundir saman...

Nonni átti í vafasömum og óæskilegum atlotum við nærhald í eigu Húna...

Og Nonni ríður náttúrulega öllum...

----

Gamanið er búið...RIP

Hannes


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.11.2006 23:46:16 / robbi

Ask Jesus.com

Ég heyrði áhugavert quote í dag
"If god was a woman she had maked sperm taste like chocolate"
í raun er ég ekki viss hvort þetta sé rétt, ég held að ef guð væri kall þá hefði hann gert þetta...
Kannski er þetta sönnun á því að guð sé einfaldlega ekki til... ég veit ekki ég er soldið rínglaður í trúnni minn á guð núna.


EN ég horfði á þessa mynd um dæginn "Jesus Camp"
það er að vísu bara trailer á Youtube en það er svakalegt
http://www.youtube.com/watch?v=y_EKHK1C2IE

Hún er meira scary en allar þær hrillingsmyndir sem ég hef séð á ævinni


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.11.2006 13:44:32 / Olx

South Park WoW

Óvenju fyndið South Park grill, eru ekki örugglega einhverjir sem ennþá spila WoW?

» 7 hafa sagt sína skoðun

02.11.2006 22:27:12 / robbi

Hvert er Bandið?

Bandið var stofnað í þýskalandi árið 1969 af Rudolf Schenker,
og er neft eftir skordýrir sem ekki lifir í þýskalandi

Árið 1972 kom út first platan “Lonesome Crow” sem var notuð í myndinni “Das Kalte Paradies” sama ár.
Fyrsti smellurinn þeirra er án efs “No One Like You." Af plötunni Blackout sem seldist í miljón eintökum í BNA.

Önnur lög sem gerðu bandið frægt var "Rock You Like a Hurricane" og "Rhythm of Love"Sem komu út árið1988,og gerðu þessa evrópsku hljómsveit að einni vinsælustu hljómsveit álfunar ef ekki heimsins

Það var svo árið 1990 stuttu eftir miklu breytingar sem urðu í þýskalandi eftir fall múrsins að hljómsveitinn tók upp lægið sem átti eftir að gera þá að einni mest seldu hljómsveit sem hefur komið frá meginlandi evrópu. Þetta lag kom af plötunni “Crazy world” og titillagið blés eins og ferskur vindur um tónlistar heiminn.

Þeir hættu loks að spila árið 2000 eftir að hafa selt 22 miljónir platna, sem verður bara að teljast helvíti gott.

Sá sem fattar þetta fær einn Crazy Birra™ í boði Robba, og ég ætla að biðja fólk að hoppa ekki bara inn á internetið og Googla þetta! Það er Hint í feitletruðu orðunum.
 

*Crazy Birra™ Registerd Trademark of RoboCorp.
50% Tequila 50% Viskí 50% Tabasko sósa 1/3 Sítrónusafi, og
15,3 mg af
3,4,5-Trimethoxyphenyl-2-ethylamin.


» 28 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3